

Skipulagsstjóri
Vilt þú taka þátt í að þróa og móta starfsemi Reykjalundar til framtíðar ?
Reykjalundur endurhæfing ehf. leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi til að gegna stöðu skipulagsstjóra. Um nýtt starf er að ræða og hefur viðkomandi tækifæri til að móta starfið í samstarfi við stjórnendur.
Skipulagsstjóri heyrir beint undir forstjóra. Hann starfar náið með framkvæmdastjórn og öðrum stjórnendum, s.s. mannauðsstjóra, fjármálastjóra, gæðastjóra og forstöðumanni upplýsinga- og velferðartækni.
Um fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á þróun, skipulag og framtíðar endurhæfingarþjónustu á Reykjalundi. Starfið felur einnig í sér að leiða og samhæfa mikilvæg þverfagleg verkefni ásamt því að fylgja eftir framkvæmd stefnu, markmiða og umbóta.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkefnastjórnun og samhæfing þverfaglegrar þróunar- og umbótaverkefna.
- Þróun gagnadrifins skipulags fyrir alla starfsemi Reykjalundar.
- Eftirfylgni stefnu, markmiða og verkefna Reykjalundar.
- Verkefnastjórnun CARF faggildingar.
- Þróun og samhæfing einstaka skipulagsþátta og verkferla.
- Samhæfing verkefna á sviði öryggis-, viðbúnaðar- og aðgengismála.
- Samhæfing möttöku og innleiðingar nýs starfsfólks.
- Umsjón og samhæfing starfsemistalna, lykiltalna og stjórnendaupplýsinga.
- Þátttaka í þverfaglegum verkefnum á sviði gæða-, mannauðs- og upplýsingamála og velferðartækni.
- Undirbúningur, innleiðing og eftirfylgni breytinga og umbótaverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, verkefnastjórnun.
- Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagsþróun, breytingastjórnun eða öðrum sambærilegum verkefnum.
- Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
- Mjög góð skipulags- og greiningarhæfni ásamt hæfni til að fylgja verkefnum markvisst eftir.
- Frumkvæði, sjálfstæði og lausnarmiðuð nálgun.
- Hæfni til að greina heildarmynd og þau atriði sem til þarf svo að hún komist í framkvæmd.
- Hæfni til að starfa með ólíkum fagstéttum og stjórnendum og leiða verkefni þvert á starfseiningar.
- Þekking á heilbrigðisþjónustu, endurhæfingu, gæðamálum og/eða CARF faggildingu er kostur.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Mjög góð tölvukunnátta og gagnahæfni.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, afriti af prófskírteinum og sakavottorði. Öllum umsóknum verður svarað.
Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar - [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri - [email protected]
Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Icelandic
English










