Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála

Vilt þú leiða öflugt teymi og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar?

Reykjanesbær leitar að drífandi og skipulögðum leiðtoga í starf teymisstjóra umhverfismála. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umhverfismálum, metnað fyrir góðri þjónustu og hæfni til að leiða fólk og fjölbreytt verkefni.

Reykjanesbær er ört vaxandi sveitarfélag þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og spennandi verkefni eru framundan. Á umhverfis- og framkvæmdasviði starfar öflugur hópur með fjölbreytta sérfræðiþekkingu sem vinnur saman að metnaðarfullri þróun sveitarfélagsins.

Teymisstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun umhverfisteymis, skipuleggur verkefni og fylgir eftir framkvæmd þeirra. Í starfinu felast mannaforráð, samskipti við íbúa og verktaka og náið samstarf við starfsfólk og stofnanir sveitarfélagsins. Áhersla er lögð á skýra verkstýringu, gott samstarf og stöðugar umbætur í þjónustu.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri umhverfismála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun umhverfisteymis, verkstýring og umsjón með mannauðsmálum teymisins.
  • Gerð starfs- og verkáætlana, forgangsröðun verkefna og eftirfylgni með framvindu þeirra.
  • Umsjón með garðyrkju, slætti, gróðursetningu og skógrækt, ásamt viðhaldi og þróun grænna svæða.
  • Umsjón með úrgangsmálum og eftirfylgni með þjónustu vegna heimilisúrgangs, grenndarstöðva, jarðvegslosunarsvæðis og móttökusvæða.
  • Umsjón með bílastæðasjóði og rekstri sem honum tengist.
  • Umsjón með og eftirfylgni verkefna sem tengjast heilbrigðis- og umhverfiseftirliti.
  • Samningagerð við verktaka og eftirlit með þjónustu þeirra og framkvæmd verkefna.
  • Þátttaka í undirbúningi fjárhagsáætlunar í samráði við deildarstjóra.
  • Þróun verklags og eftirfylgni með gæðum og þjónustu umhverfismiðstöðvar.
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til íbúa, samstarfsaðila og starfsfólks, ásamt kynningum fyrir ráð og nefndir eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði umhverfismála, verkefnastjórnunar eða rekstrar.
  • Starfsreynsla eða stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi.
  • Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu sveitarfélaga er æskileg.
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og stjórnunarhæfni.
  • Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér nýja tækni.
  • Færni og reynsla í að miðla upplýsingum á skýran hátt, bæði í ræðu og riti.
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published26. October 2026
Application deadline9. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Meticulousness
Work environment
Professions
Job Tags