Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Þróunarstjóri gervigreindar

Háskólinn á Akureyri hefur lagt ríka áherslu á að vera í fararbroddi í markvissri og ábyrgri nýtingu gervigreindar í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu.
Háskólinn leitar að öflugum og framsýnum þróunarstjóra gervigreindar til að leiða þróun, innleiðingu og samhæfingu gervigreindar og stafrænna lausna innan háskólans.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði gervigreindar og stafrænna lausna. Í stefnu HA kemur fram að háskólinn viðurkennir gervigreind sem órjúfanlegan þátt í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu til framtíðar. Starfið felur í sér faglega forystu, ráðgjöf, fræðslu og verkefnastýringu á sviði gervigreindar, í nánu samstarfi við stjórnendur, kennara, rannsakendur, starfsfólk og nemendur.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Kennslumiðstöðvar HA. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða stefnumótun, innleiðingu og reglubundna endurskoðun stefnu HA um gervigreind
  • Greina þarfir, tækifæri og áhættu tengda notkun gervigreindar og leggja fram tillögur um forgangsröðun verkefna
  • Leiða undirbúning, prófun og innleiðingu samþykktra gervigreindarlausna í samstarfi við viðkomandi einingar
  • Veita ráðgjöf og leiðsögn um ábyrga notkun gervigreindar í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu
  • Skipuleggja fræðslu og útbúa leiðbeiningar og hjálparefni fyrir starfsfólk og nemendur
  • Tryggja að notkun gervigreindar í háskólasamfélaginu taki mið af þörfum og hlutverki HA ásamt því að fylgja kröfum um upplýsingaöryggi, persónuvernd og góða stjórnsýsluhætti
  • Veita stjórnendum faglega ráðgjöf um stefnumótandi ákvarðanir hvað varðar notkun gervigreindar og stafrænt umbótastarfs innan HA
  • Þróar og heldur utan um Borg sem er gervigreindarumhverfi HA
Menntunar- og hæfniskröfur

Auk faglegrar þekkingar þarf viðkomandi að búa yfir framúrskarandi samstarfs- og samskiptafærni og getu til að skapa samstöðu um markmið.

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af notkun, þróun eða innleiðingu gervigreindar
  • Víðtæk þekking og reynsla af stafrænni þróun og upplýsingatækni
  • Leiðtogahæfni og reynsla af því að virkja fólk, byggja upp samstarf og skapa meðbyr með breytingum
  • Greiningarhæfni, skipulagshæfni, frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla flóknum viðfangsefnum á skýran hátt
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Æskilegt er að umsækjandi hafi:

  • Reynslu af stefnumótun og innleiðingu breytinga
  • Þekkingu á starfsumhverfi háskóla eða opinberra stofnana
  • Þekkingu á persónuvernd, upplýsingaöryggi og regluverki um gervigreind
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Advertisement published23. October 2026
Application deadline6. November 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags