Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á sviði Umhverfisgæða í teymi hringrásarhagkerfis. Helstu verkefni sérfræðingsins munu felast í stjórnsýslu úrgangsmála, úrgangsforvörnum og innleiðingu stefnu stjórnvalda í hringrásarmálum. Starfið krefst mikilla samskipta við stofnanir ríkis og sveitarfélaga og einnig við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir, hagaðila innanlands og almenning.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnsýsla úrgangsmála, stuðningur við sveitarfélög, ríki og fyrirtæki á þessu sviði
  • Greiningar á EES gerðum og vinna tengd innleiðingu regluverks á sviði hringrásarmála
  • Þátttaka í innleiðingu stefnunnar Í átt að hringrásarhagkerfi og Evrópuverkefni (Circle of Life) tengdu henni
  • Stuðningur við úrgangstölfræði og skýrsluskil
  • Stuðningur vegna annara verkefna teymis um hringrásarmál, svo sem miðlun og fræðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Menntun á sviði opinberrar stjórnsýslu eða lögfræði er kostur
  • Menntun eða reynsla á sviði náttúruvísinda er kostur
  • Þekking og/eða reynsla af vinnu við hringrásarhagkerfi, úrgangsstjórnsýslu og miðlun er kostur
  • Reynsla af því að starfa í teymi er kostur
  • Geta til að sýna frumkvæði
  • Hæfni til að nálgast verkefni skipulega og reynsla af verkefnastjórn og umbótastarfi
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og ri
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Advertisement published21. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags