Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Verkefnisstjóri á sviði innri og ytri skilyrða - samfélag og umhverfi

Leggðu okkur og umhverfinu lið!

Við á sviði samfélags og umhverfis leitum að öflugum teymisfélaga. Við berum virðingu fyrir náttúru landsins og ásýnd þess og leggjum áherslu á að þekkja og draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Í teyminu færð þú tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi og hjálpa okkur að vanda til verka í þeim stóru framkvæmdum sem nú eru í gangi og framundan eru.

Starfsstöð er í Reykjavík.

Helstu verkefni:

  • Taka þátt í undirbúningi nýrra virkjana og byggingu þeirra.
  • Fylgja eftir kröfum sem varða umhverfis-, leyfis- og skipulagsmál.
  • Halda utan um umhverfis- og samskiptaáætlanir framkvæmdaverkefna.
  • Taka þátt í umbótaverkefnum sem snúa að því að draga úr umhverfisáhrifum nýrra virkjana.

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?

  • Menntun á háskólastigi í umhverfisfræði, verkfræði eða öðrum sambærilegum greinum
  • Þekking á umhverfismálum og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda
  • Reynsla af framkvæmdum eða undirbúningi framkvæmda kostur
  • Skipulagsfærni, vilji til að læra og hæfni til að leysa vandamál
  • Jákvætt viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Landsvirkjun er vinnustaður þar sem öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgangi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Þú færð tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.

Advertisement published23. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project management
Work environment
Professions
Job Tags