
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Sogssvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Við leitum að liðsauka í öflugt teymi starfsfólks okkar á Sogssvæði, þar sem við rekum þrjár vatnsaflsstöðvar; Írafossstöð, Ljósafossstöð og Steingrímsstöð.
Starfið er fjölbreytt og spennandi en verkefni fela í sér viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja á svæðinu ásamt því að sjá um ástandsmælingar og greiningar á raf- og vélbúnaði.
Hæfni og þekking:
- Menntun á rafmagns- og/eða vélasviði t.d. rafvirkjun, rafiðnfræði, vélfræði.
- Þekking á viðhaldi búnaðar; véla-, vökva- og rafkerfa.
- Reynsla af raforkuvirkjum og iðnaði er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar.
- Góð almenn tölvufærni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga á starfinu.
Advertisement published16. October 2026
Application deadline26. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Írafossvirkjun 168922, 801 Selfoss
Type of work
Skills
ProfessionalismHuman relationsConscientiousIndependenceTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Vilt þú vera hluti af tækniteymi sem heldur íslenska flugstjórnarsvæðinu gangandi?
Avians

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Rekstur og viðhald á Mývatnssvæði
Landsvirkjun

Vélvirki / Vélstjóri / Bifvélavirki
Stólpi

Flokkstjóri sem leiðir fólk og tekur þátt í verkinu
Orkuvirki

Ert þú reynslumikill rafvirki sem vilt skila verki sem þú getur verið stolt(ur) af?
Orkuvirki

Rafvirki – Centroid ehf
Centroid ehf.

Við leitum að öflugum rafvirkja í okkar lið!
Raf-X

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Rafvirki
Blikkás ehf

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE