Orkuvirki
Orkuvirki
Orkuvirki

Ert þú reynslumikill rafvirki sem vilt skila verki sem þú getur verið stolt(ur) af?

Orkuvirki óskar eftir því að ráða öflugan rafvirkja í fullt starf við framleiðslu, uppsetningu, viðhald og þjónustu. Við leitum að fagmanni sem vinnur sjálfstætt, er lausnarmiðaður, leggur metnað í frágang og veit að gæði og öryggi byggjast á góðum vinnubrögðum frá upphafi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við framleiðslu, uppsetningu og þjónustu
  • Vinna við háspennu, millispennu og lágspennu
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Tryggja fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang
  • Gæta öryggis og réttrar meðferðar efnis, verkfæra og búnaðar
  • Deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun
  • Starfsreynslu sem rafvirki
  • Fagleg og nákvæm vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Öryggisvitund og rík ábyrgðarkennd
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Frábær starfsandi og öflugt teymi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að vaxa í starfi
  • Verkfæri og viðeigandi fatnaður
  • Niðurgreiddur hádegisverður
  • Íþróttastyrkur
Advertisement published16. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.Journeyman license
Professions
Job Tags