
SÁÁ
SÁÁ eru frjáls og óháð almannaheillasamtök sem starfrækja sérhæfða heilbrigðis- og lýðheilsuþjónustu vegna fíknsjúkdóms og veita jafnframt víðtækan stuðning við aðstandendur.
Samtökin gegna lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og bjóða upp á samfellu í þjónustu sem nær yfir fráhvarfs- og lyfjameðferð, inniliggjandi meðferð, dag- og göngudeildarþjónustu, eftirfylgni og stuðning. Þjónustan er veitt í samræmi við faglegar leiðbeiningar, bestu þekkingu hverju sinni og gagnreyndar aðferðir.
SÁÁ eru bæði þjónustuaðili og málsvari.
Samtökin sinna sérhæfðri meðferð í umboði samfélagsins og standa jafnframt vörð um réttindi, velferð og mannvirðingu fólks með fíknsjúkdóm og fjölskyldna þeirra. Í starfinu er lögð sérstök áhersla á að tryggja jafnt aðgengi að árangursríkri meðferð, veita heildræna og þverfaglega þjónustu og efla bataferli einstaklinga og nánustu aðstandenda þeirra með markvissum stuðningi og fræðslu.
Sjá nánar á www.saa.is
Fjármálastjóri
Viltu taka þátt í að styðja við traustan rekstur og góða ákvarðanatöku?
SÁÁ leitar að reynslumiklum og greinandi einstaklingi í starf fjármálastjóra. Viðkomandi mun vinna náið með stjórnendum að fjármálastýringu, greiningu og áætlanagerð, auk þess að veita mikilvægan stuðning við ákvarðanatöku.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri rekstrar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á fjármálastjórn og rekstrareftirliti
- Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana og rekstrarspáa
- Kostnaðargreiningar og þróun stjórnendaupplýsinga
- Greining frávika og tillögur að úrbótum
- Ábyrgð á uppgjörum, bókhaldi og samskiptum við endurskoðendur
- Lausafjárstýring, sjóðstreymi og fjárhagsleg áhættustýring
- Ráðgjöf til framkvæmdastjórnar um rekstur og fjárhagsleg málefni
- Þátttaka í þróun tekjustofna og eflingu fjárhagslegs grundvallar starfseminnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði fjármála, viðskiptafræði eða hagfræði
- Reynsla af fjármálastjórn, rekstrargreiningu og reikningshaldi
- Góð þekking á kostnaðarbókhaldi og fjárhagsáætlanagerð
- Reynsla af stjórnendaupplýsingum og greiningartólum
- Reynsla af stjórnun eða faglegri forystu er kostur
- Er sjálfstæður, lausnamiðaður og drífandi
- Hefur framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Fagmennska, ábyrgð og heilindi í starfi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Advertisement published22. October 2026
Application deadline8. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Financial Analyst | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Bókari
Eðalfang ehf.

Fjármálasérfræðingur hjá Arctic Therapeutics
Arctic Therapeutics ehf.

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Fjármálastjóri (CFO) – GreenFish hf.
GreenFish

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Sérfræðingur í alþjóðlegum efnahagsmálum og fjármálamörkuðum
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.
ECIT