Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálum til starfa á bókhaldssvið stofnunarinnar. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér samstarf þvert á starfsstöðvar HSN. Hægt er að sinna starfinu frá hvaða meginstarfsstöð HSN sem er. Sérfræðingur í fjármálum heyrir undir forstöðumann bókhalds, innheimtu og greininga.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir fjölbreytta heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 800 talsins.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greiningar og vinna við stjórnendaupplýsingar

  • Rekstraráætlun

  • Fjárreiðar og greiðsla reikninga

  • Afstemming bankareikninga

  • Ferðauppgjör

  • Stuðningur við innheimtu og sjúkratryggingar

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmenn

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af fjármálum, rekstrargreiningum eða sambærilegum verkefnum skilyrði

  • Góð greiningarhæfni, framsetning gagna og tölvukunnátta skilyrði

  • Þekking á Akra (áætlunarkerfi ríkisaðila), Power BI, Qlik Sense eða sambærilegum kerfum er kostur

  • Góð samskiptahæfni og jákvæðni

  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð ásamt sterkri ábyrgðarkennd

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð

  • Faglegur metnaður í starfi og árangursmiðað viðhorf

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur

  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Harpa Sif Jónsdóttir

Forst.m. bókhalds, innheimtu og greininga

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 432 4041

Þórhallur Harðarson

Framkvæmdastjóri fjármála og reksturs

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 432 4040

Advertisement published20. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hvannavellir 14, 600 Akureyri
Auðbrekka 4, 640 Húsavík
Flúðabakki 2, 540 Blönduós
Hvanneyrarbraut 37, 580 Siglufjörður
Sauðárhæðir 143929, 550 Sauðárkrókur
Hólavegur 6, 620 Dalvík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags