
Raftákn
Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa með höfuðstöðvar á Akureyri og útibú í Reykjavík. Hjá fyrirtækinu starfa 35 manns, verkfræðingar, tæknifræðingar og iðnfræðingar. Við sérhæfum okkur í iðnstýringum, skjákerfum, raflagna- og rafkerfahönnun. Viðskiptavinir eru fyrirtæki í öllum geirum, opinberir aðilar sem og einstaklingar. Við erum með ISO 9001 vottun auk þess að vera Certified Siemens Partner.

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn verkfræðistofa leitar að skipulögðum, áreiðanlegum og framsýnum einstaklingi í framtíðarstarf skrifstofu- og gæðastjóra á starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk þar sem viðkomandi hefur umsjón með fjármálum og gæðamálum fyrirtækisins auk innra starfi.
Viðkomandi fær tækifæri til að móta og þróa starfið með innleiðingu á aukinni sjálfvirkni og gervigreind til að straumlínulaga innri ferla og rekstur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjármál og bókhald: Umsjón með daglegu bókhaldi, launavinnslu, reikningagerð, greiðslu reikninga og innheimtu. Halda utan um og fylgja eftir kostnaðaráætlunum verkefna í samstarfi við verkefnastjóra.
- Gæða- og persónuverndarmál: Viðhald og þróun á ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins ásamt því að gegna hlutverki persónuverndarfulltrúa.
- Þjónusta, skipulag og innkaup: Daglegur rekstur skrifstofu og ýmis þjónusta við starfsfólk ásamt virkri þátttöku í markaðsstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lögð er rík áhersla á heiðarleika, áreiðanleika og samviskusemi í störfum og gerð krafa um hreina sakaskrá.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (t.d. tengt bókhaldi, viðskiptafræði eða stjórnun).
- Reynsla af bókhaldskerfum og launavinnslu er skilyrði. Raftákn notar BC fyrir bókhald og Tempo Timesheets fyrir tímaskráningar. Reynsla af BC er mikill kostur.
- Áhugi á nýtingu gervigreindar og tæknilausna.
- Þekking og reynsla af gæðastjórnun (ISO 9001) og persónuverndarmálum er mikill kostur.
- Skipulagshæfni, nákvæmni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Rík þjónustulund, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
Advertisement published9. October 2026
Application deadline21. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Glerárgata 34, 600 Akureyri
Type of work
Skills
ReliabilityProfessionalismProactiveHonestyClean criminal recordPayroll processingHuman relationsMicrosoft Dynamics 365 Business CentralPrecisionBillingNon smokerPlanningQuality tracking systemsMeticulousness
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
KPMG á Íslandi

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Fjármála- og rekstrarstjóri
Dropp

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Sérfræðingur í kjaramálum á Akureyri
Kjölur stéttarafélag í almannaþjónustu

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Sérfræðingur í innheimtu og greiðslum
BYKO

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan