Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í alþjóðlegum efnahagsmálum og fjármálamörkuðum

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan sérfræðing í teymi fjármálamarkaða á sviði fjármálastöðugleika til að móta og sjá um greiningu og miðlun efnis um þróun erlendra efnahagsmála og áhættu tengdri alþjóðastjórnmálum.

Eitt meginverkefna Seðlabankans er að stuðla að stöðugu, öruggu og virku fjármálakerfi. Svið fjármálastöðugleika hefur umsjón með greiningu á áhættu í fjármálakerfinu, fylgist með þróun þess, styrk, skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni. Einnig tekur sviðið þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið, ber ábyrgð á framkvæmd álagsprófa og fylgist með greiðslumiðlun og fjármálainnviðum með það að markmiði að stuðla að öryggi, virkni og hagkvæmni.

Markmið deildar fjármálamarkaða er að varðveita stöðugleika fjármálakerfisins í heild með því að takmarka kerfisáhættu, styrkja viðnámsþrótt og lágmarka þannig hættu á fjármálaáföllum. Sérfræðingurinn mun bera ábyrgð á skrifum fyrir ritið Fjármálastöðugleika ásamt öðrum greiningum fyrir Seðlabankann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgjast með og greina þróun erlendra fjármálamarkaða, stjórnmála og efnahagsmála og meta möguleg áhrif hér á landi.
  • Greina m.a. alþjóðlega skuldsetningu, vaxtaþróun, lausafjáráhættu, ríkisfjármálaáhættu og gjaldeyris-, hrávöru- og eignamarkaði.
  • Þróa greiningar og gagnasöfn.
  • Skrifa í rit bankans, m.a. Fjármálastöðugleika, kynna niðurstöður og rannsóknir. 
  • Taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í hag- eða verkfræði. Framhaldsmenntun er kostur. 
  • Góð þekking á  fjármálamörkuðum og þjóðhagfræði.
  • Þekking á helstu miðlunarleiðum alþjóðlegra áfalla yfir í raunhagkerfið og fjármálakerfið er kostur.
  • Reynsla af greiningu á alþjóðlegri efnahagsþróun, fjármálamörkuðum, geópólitískri áhættu eða fjármálastöðugleika er kostur.
  • Reynsla af vinnu með gagnagrunna er æskileg.
  • Reynsla af tímaraðagreiningum og notkun tölfræðiforrita er kostur. 
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð, greiningarhæfni og frumkvæði. 
  • Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum. 
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Advertisement published16. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Risk analysisPathCreated with Sketch.International businessPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.EconomistPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags