

Verkefnastýri viðburða og félagsstarfs
Samtökin ’78 leita að verkefnastýri viðburða og félagsstarfs í 100% starf. Starfið er tækifæri til að leggja sitt af mörkum til mannréttinda, velferðar og öflugs hinsegin samfélags.
Starfið felst meðal annars í þvi að þróa og halda utan um aðgengilegt og fjölbreytt félagsstarf sem styrkir tengsl og þátttöku innan hinsegin samfélagsins.
Skipuleggja alla viðburði á vegum Samtakanna í samstarfi við stjórn og framkvæmdastjóra.
Skipuleggja og fylgja eftir félagsviðburðum og reglulegu félagsstarfi.
Halda utan um ungmennastarf, 60+, Regnbogalínuna og félagsstarf í Suðurgötu í samstarfi við viðeigandi umsjónaraðila.
Verja tíma í að virkja, styðja og halda utan um sjálfboðaliða sem koma að starfi Samtakanna.
Gera verkefna- og kostnaðaráætlanir fyrir viðburði og meta þátttöku og árangur.
Þróa og innleiða nýja viðburði ásamt þvi að viðhalda þeim sem fyrir eru.
Viðeigandi menntun eða sambærileg reynsla; reynsla af ungmennastarfi er kostur.
Reynsla af verkefnastjórnun, viðburðum eða félagsstarfi.
Hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópum og leiða sjálfboðaliðastarf.
Skipulagshæfni, frumkvæði og góð samskiptafærni.
Þekking á hinsegin málefnum og næmi fyrir ólíkum aðstæðum þátttakenda.
Icelandic










