Alva Capital ehf.
Alva Capital ehf.

Verkefnastjóri framkvæmda

ALVA Capital leitar að öflugum og sjálfstæðum verkefnastjóra til að leiða framkvæmdaverkefni innan ört vaxandi eignasafns félagsins á sviði fasteignaþróunar.

Félagið hefur byggt upp fjölbreytt safn hótel- og annarra fasteigna í Reykjavík og fram undan eru fleiri spennandi þróunarverkefni.

Við leitum að lausnamiðuðum og öflugum einstaklingi sem tekur frumkvæði, hefur góða verklega þekkingu og getur sjálfstætt stýrt framkvæmdaverkefnum, forgangsraðað verkefnum og leitt framkvæmdateymi félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjálfstæð verkefnastjórn framkvæmda frá undirbúningi til afhendingar.

  • Verkefnaleg stjórnun framkvæmdateymis, úthlutun verkefna, forgangsröðun og eftirfylgni.

  • Gerð og eftirfylgni tíma-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana.

  • Dagleg úrlausn verkefna og áskorana í samstarfi við verkstjóra, verktaka og hönnuði.

  • Innkaup, verðfyrirspurnir, útboð og samningastjórnun.

  • Kostnaðareftirlit, reikningayfirferð og uppgjör verkefna í samstarfi við fjármálasvið.

  • Samhæfing hönnuða, verktaka og annarra hagaðila ásamt reglulegri skýrslugjöf um framvindu og frávik.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða iðnmenntun ásamt víðtækri reynslu.

  • Mikil verkleg þekking og reynsla af stjórnun byggingarframkvæmda.

  • Byggingarstjóraréttindi og/eða meistararéttindi í húsasmíði teljast mikill kostur.

  • Góð þekking á byggingaaðferðum, verklegum lausnum, teikningalestri og kostnaðaráætlunum.

  • Reynsla af verkbókhaldi, innkaupum og kostnaðareftirliti.

  • Reynsla af stjórnun starfsfólks og verktaka, forgangsröðun og eftirfylgni verkefna.

  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni.

  • Sjálfstæði, frumkvæði, góð dómgreind og lausnamiðuð vinnubrögð.

Advertisement published11. November 2026
Application deadline7. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags