

Verkefnastýri 50 ára afmælisárs
Viltu taka þátt í að móta tímamót í sögu hinsegin baráttu á Íslandi?
Samtökin ’78 leita að hugmyndaríku og skipulögðu verkefnastýri til að halda utan um undirbúning og framkvæmd 50 ára afmælisárs samtakanna árið 2028. Samtökin verða fimmtug í maí það ár og afmælið verður tækifæri til að heiðra söguna, fagna samfélaginu og horfa til framtíðar.
Um er að ræða tímabundið starf í 20% starfshlutfalli árið 2027 og 50% starfshlutfalli frá janúar til september 2028.
Verkefnastýri vinnur náið með framkvæmdastjóra, afmælisnefnd, starfsfólki og sjálfboðaliðum að því að skapa fjölbreytta og aðgengilega afmælisdagskrá. Árið 2027 verður megináhersla á hugmyndavinnu, áætlanagerð og undirbúning en árið 2028 á framkvæmd, kynningu og eftirfylgni.
Móta afmælisdagskrá í samstarfi við afmælisnefnd, stjórn og framkvæmdastjóra.
Gera verkefna-, tíma- og kostnaðaráætlanir og fylgja þeim eftir innan samþykkts fjárhagsramma.
Skipuleggja og samræma afmælisviðburði og önnur verkefni tengd afmælisárinu.
Eiga samskipti við samstarfsaðila, þátttakendur og þjónustuaðila.
Virkja félagsfólk og sjálfboðaliða og halda utan um þátttöku þeirra.
Taka þátt í styrkumsóknum og öflun samstarfs og stuðnings í samráði við framkvæmdastjóra.
Samræma kynningu afmælisársins með starfsfólki sem sinnir samskiptum og miðlun.
Halda utan um skráningu verkefna, meta árangur og ganga frá lokaskýrslu.
Reynsla af verkefnastjórnun og skipulagningu viðburða eða sambærilegra verkefna.
Góð skipulagshæfni og geta til að forgangsraða og fylgja verkefnum til enda.
Frumkvæði, sköpunargleði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Lipurð í samskiptum og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
Þekking á hinsegin málefnum og áhugi á sögu og mannréttindabaráttu hinsegin fólks.
Góð færni í íslensku og ensku.
Reynsla af áætlanagerð, styrkumsóknum eða samstarfi við sjálfboðaliða er kostur.
Menntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla.
Icelandic










