Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur stíflueftirlits

Gætir þú gætt að stíflum?

Við hjá Landsvirkjun leitum að sérfræðingi í stíflueftirliti. Það felur í sér ábyrgð á umsjón mæligagna og greiningu og þróun eftirlitskerfa. Starfið er á sviði vatnsafls og því fylgir bæði fagleg ábyrgð og samvinna, þar sem sérfræðingurinn stýrir ráðgjöfum, tekur þátt í öryggisúttektum og tryggir að viðvörunarkerfi okkar séu ávallt í fremstu röð. Sérfræðingur í stíflueftirliti verður hluti af framsæknu teymi sérfræðinga þar sem sjálfbærni, öryggi og vellíðan eru í fyrirrúmi.

Við hverju má búast?

  • Að hafa umsjón með mæligögnum og mælikerfum stíflueftirlits.
  • Að greina og túlka gögn frá mælitækjum, landmælingum og öðru eftirliti.
  • Að þróa og viðhalda sjálfvirkum eftirlits- og viðvörunarkerfum.
  • Að taka þátt í stífluöryggisskoðunum og -úttektum.
  • Að stýra ráðgjöfum og verkefnum tengdum mælitækjum og eftirlitskerfum.

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?

  • Meistaragráðu í byggingarverkfræði, jarðeðlisfræði, jarðfræði eða skyldri grein (æskilegt).
  • Reynslu af stíflueftirliti, mælitækjum, gagnagreiningu eða stífluöryggi (kostur).
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að vinna í teymi.
  • Umbótahugsun, jákvæðni og framsýni.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Landsvirkjun er vinnustaður þar sem öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgangi. Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Þú færð tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.

Advertisement published6. November 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags