
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfsmaður á rannsóknarstofu
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til starfa á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar.
Starfið felur í sér að sinna fjölbreyttum grunnrannsóknum á steinefnum sem notuð eru í vegagerð. Við leitum að manneskju sem er úrræðagóð, nákvæm og þrautseig. Vinnan getur verið líkamlega krefjandi við meðhöndlun á sýnum.
Rannsóknarstofan fellur undir stoðdeild sem er á viðhalds- og þjónustusviði Vegagerðarinnar og starfa þar um 17 manns.
Starfsstöðin er á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Grunnrannsóknir á jarðefnum sem notuð eru í vegagerð.
- Framkvæmd efnis- og gæðaprófana.
- Skráning í rannsóknarkerfi Vegagerðarinnar.
- Umsjón með sýnum og viðhald tækjabúnaðar.
- Hluti starfsins felur í sér aðstoð við jarðtæknirannsóknir svo sem borun, jarðsjármælingar og veggreini.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Háskólamenntun svo sem jarðfræði er kostur eða BA/BS í raungreinum.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
- Reynsla af teymisvinnu og góð hæfni til að vinna sjálfstætt skilyrði.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
- Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
- Góð tölvufærni.
- Góð öryggisvitund.
Advertisement published28. October 2026
Application deadline9. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (1)
