Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu

Góður vinnustaður gerist ekki af sjálfu sér

Á bak við hvern góðan vinnustað er manneskja sem hugsar vel um fólkið og passar að hlutirnir gangi snurðulaust fyrir sig. Hún sér til þess að nýtt samstarfsfólk fái hlýjar móttökur, að starfsfólki líði vel á skrifstofunni, að viðburðurinn verði eftirminnilegur, að ferðin sé bókuð og að fundarherbergið sé klárt. Við leitum að þeirri manneskju.

Um starfið

Í þessu starfi verður þú manneskjan sem fólkið okkar leitar til og tekur virkan þátt í að móta vinnustaðamenningu Wise. Þú vinnur náið með framkvæmdastjóra fjármála og færð að móta starfið með okkur. Um er að ræða starf á starfsstöð í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

Það sem þú munt gera

  • Taka vel á móti nýju fólki og fylgja því eftir fyrstu vikurnar í starfi
  • Efla starfsánægju og vellíðan á vinnustaðnum
  • Vera fyrsti tengiliður starfsfólks vegna aðstöðu og daglegs umsjónar skrifstofunnar
  • Skipuleggja viðburði og félagslíf, bæði stóra og smáa, innanhúss og utan
  • Sjá um innri upplýsingamiðlun til starfsfólks
  • Taka þátt í flutningum í nýjar höfuðstöðvar og koma nýrri aðstöðu í gott horf
  • Halda utan um samskipti við þjónustuaðila á sviði aðstöðu, heilsu og fræðslu
  • Styðja við ráðningar: auglýsingar, samskipti við umsækjendur og bókun viðtala
  • Sækja um styrki, t.d. fræðslustyrki
  • Annast vinnuferðir starfsfólks, frá bókun til heimkomu
Menntunar- og hæfniskröfur

Þú ert líklega rétta manneskjan ef þú…

  • hefur reynslu af sambærilegu starfi, t.d. á sviði skrifstofustjórnunar eða mannauðsmála
  • hefur einlægan áhuga á fólki og vellíðan á vinnustað
  • átt auðvelt með samskipti og nýtur þess að hjálpa öðrum
  • býrð yfir góðri skipulagshæfni og fylgir verkefnum eftir til enda
  • sýnir frumkvæði og heldur ró þinni þótt mikið sé um að vera
  • sýnir nærgætni og fagmennsku í meðferð trúnaðarupplýsinga
  • hefur gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Advertisement published4. November 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags