Atlantsolía
Atlantsolía
Atlantsolía

Þjónustufulltrúi

Atlantsolía leitar að jákvæðum og sjálfstæðum þjónustufulltrúa til að taka að sér að veita viðskiptavinum góða þjónustu með hröðum og einföldum hætti.

Fyrirtækið stendur fyrir einfaldleika, heiðarleika, kjark og gleði og leggur sig fram við að þau gildi endurspeglist í viðmóti og snertingu við viðskiptavini.

Ef þú ert skemmtilegur samskiptasnillingur með brennandi áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn þjónusta við viðskiptavini.
  • Símsvörun og móttaka.
  • Vöktun og svörun á tölvupóstum, samfélagsmiðlum og netspjalli.
  • Tengiliður fyrirtækja í viðskiptum.
  • Ráðgjöf og tilboðsgerð til einstaklinga og fyrirtækja.
  • Ýmis önnur fjölbreytt verkefni.


Hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjónustustarfi æskileg.
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Frumkvæði, vinnusemi og stundvísi.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti.



Um er að ræða fullt starf frá 8-16 alla virka daga, nema til klukkan 15 á föstudögum.


Atlantsolía hefur það að stefnu og markmiði að bjóða samkeppnishæft verð á eldsneyti, gott aðgengi að bensínstöðvum og einfaldleika og gæði í þjónustu.

Fyrirtækið leggur áherslu á lágan rekstrarkostnað, hagkvæm innkaup, skilvirka dreifingu, vel staðsettar stöðvar og hæft starfsfólk.

Framtíðarsýn Atlantsolíu er að vera best rekna olíufyrirtæki Íslands og leiðandi í sölu á ódýru eldsneyti til einstaklinga og fyrirtækja.


Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember og við hvetjum öll áhugasöm að kynna sér starfið og sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).

Advertisement published30. October 2026
Application deadline14. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags