
Hagvangur
Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 8 sérfræðingar við ráðningar og stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og hefur þjónustað hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf og margt fleira.
Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breitt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af. Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins.

Móttöku- og skrifstofustarf
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa á skrifstofu og í móttöku hjá traustu fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum, leggur metnað í að veita góða þjónustu og á auðvelt með að halda utan um ólík verkefni. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri skipulagshæfni og leggja áherslu á faglega og hlýlega framkomu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og þjónusta við gesti
- Símsvörun og afgreiðsla almennra fyrirspurna
- Umsjón með móttöku og sameiginlegum rýmum og tryggja að þau séu snyrtileg
- Utanumhald, skipulag og eftirfylgni með tilteknum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af móttöku-, þjónustu- eða skrifstofustörfum er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Rík þjónustulund og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
- Jákvæð, fagleg og nærgætin framkoma
- Traust, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og gott auga fyrir smáatriðum
- Góð íslenskukunnátta
Advertisement published28. October 2026
Application deadline1. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Verkefnastjóri
KÓRÍS - Kórasamband Íslands

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Sölu- og þjónusturáðgjafi á sölusviði
Skeljungur ehf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali

Móttökuritari á heilsugæslu
Heilsugæslan Kirkjusandi

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.