Badmintonsamband Íslands
Badmintonsamband Íslands

Framkvæmdastjóri Badmintonsambands Íslands

Badmintonsamband Íslands (BSÍ) leitar að öflugum og drífandi framkvæmdastjóra til starfa. BSÍ er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fer með málefni badmintoníþróttarinnar á landsvísu, þar á meðal afreksmál og landslið, mótahald, útbreiðslu og fræðslu.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins og framfylgir stefnu og ákvörðunum stjórnar. Hann heyrir beint undir formann og stjórn. Starfið sameinar rekstur, utanumhald og uppbyggingu og hentar einstaklingi sem á auðvelt með að koma verkefnum frá hugmynd í framkvæmd.

Um er að ræða hlutastarf með sveigjanlegu starfshlutfalli og vinnutíma í samráði við stjórn.

Helstu verkefni og ábyrgð

•      Dagleg stjórnun og rekstur skrifstofu BSÍ

•      Fjármál sambandsins, áætlanagerð og eftirfylgni með rekstri

•      Samskipti við stjórn, nefndir, aðildarfélög og ÍSÍ

•      Utanumhald um mótahald

•      Umsjón með afreksmálum

•      Umsjón með útbreiðslu og fræðslu

•      Öflun styrkja og samstarfssamninga

•      Kynningar og markaðsmál

•      Stefnumótun og uppbygging í samstarfi við stjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

•      Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, íþróttafræði eða sambærilegu

•      Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkefnastjórnun

•      Þekking og skilningur á fjármálum og rekstri

•      Þekking á íþróttahreyfingunni er kostur. Þekking á badminton er kostur en ekki skilyrði

•      Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð og frumkvæði í starfi

•      Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

•      Jákvætt hugarfar og hæfni til að byggja upp og viðhalda góðum tengslum við ólíka hagaðila

•      Mjög góð tölvukunnátta og færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti

Fríðindi í starfi

Tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun badmintons á Íslandi, sjálfstæði í starfi, fjölbreytt verkefni og sveigjanlegan vinnutíma.

Advertisement published16. November 2026
Application deadline4. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Engjavegur 6, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.International cooperationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AsanaPathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.BadmintonPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Article writingPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Sport journalismPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ReglaPathCreated with Sketch.BillingPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.No tobaccoPathCreated with Sketch.Website managementPathCreated with Sketch.No vapingPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Patience
Work environment
Professions
Job Tags