
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta var stofnað árið 1986 og hefur verið í rekstri allar götur síðan. Félagið rekur fjórtán breiðþotur af gerðinni Boeing 747-400. Höfuðstöðvar félagsins eru staðsettar á Íslandi en flugrekstur á sér stað víða um heiminn.
Félagið sérhæfir sig í leigu á flugvélum ásamt áhöfnum til annara flugfélaga og gætir þess að flugleiðir viðskiptavina okkar séu starfræktar á öruggan og hagkvæman hátt.

Rostering Agent
Flugfélagið Atlanta ehf. leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa í Crew Resources deild félagsins.
Deildin annast skipulagningu mannafla, gerð og útgáfu vinnuskráa ásamt samskiptum við áhafnir. Um er að ræða fjölbreytt dagvinnustarf í lifandi starfsumhverfi þar sem skipulagshæfni, nákvæmni, sjálfstæði og góð teymisvinna eru lykilatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast mönnun og skipulagningu áhafna á flugvélum félagsins
- Sjá um gerð og útgáfu vinnuskráa áhafna
- Tryggja að vinnuskrár séu í samræmi við gildandi lög, reglur og kjarasamninga
- Skipuleggja og samræma þjálfun áhafna félagsins
- Gæta þess að flugáhafnir hafi ávallt tilskilin réttindi í gildi
- Vera í samskiptum við áhafnir og aðra hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Mjög gott vald á ensku, bæði í ræðu og riti
- Annað tungumál er kostur
- Góð Excel-kunnátta og sterk skipulagshæfni
- Reynsla úr flugheimi er kostur
- Frumkvæði, jákvætt hugarfar og lausnamiðuð nálgun
Advertisement published9. November 2026
Application deadline17. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Vaktmaður í APOC
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu
Wise lausnir ehf.

Crewing Officer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Heilbrigðisgagnafræðingur með ábyrgð á skrifstofustarfsemi - Heyrnar og talmeinastöð á Akureyri
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Starf á Skrifstofu HRFÍ
Hundaræktarfélag Íslands

Gagnaöflun - spyrill
Hagstofa Íslands

Mannauðsráðgjafi
Advania

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Mannauðsstjóri A4 – tímabundið starf
A4