

Verslunarstjóri Name It - Barnafataverslun
Bestseller á Íslandi auglýsir eftir verslunarstjóra fyrir verslunina Name It í Smáralind. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á barnafötum og hefur metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu. Hjá Name It starfar gríðarlega flottur hópur af skemmtilegu og færu fólki sem elskar barnafötin frá Name It. Við vinnum í góðri samvinnu og leggjum mikinn metnað í að veita frábæra og faglega þjónustu. Verslunarstjóri þarf að geta unnið vel í hóp og verið fyrirmynd fyrir starfsmenn verslunarinnar þegar kemur að þjónustu og vinnubrögðum.
Aðili þarf að búa yfir leiðtogahæfileikum og geta verið með góða umsjón með versluninni og starfsfólki hennar.
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er eftir vaktaplani.
Vinnutími fer fram á opnunartíma Smáralindar.
Virka daga frá kl. 11-19, laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga 12-17.
- Samskipti og stjórnun starfsmanna í verslun
- Ábyrgð á vaktaplönum í verslun
- Veita viðskiptavinum frábæra þjónustu
- Liðsinna viðskiptavinum um val á vörum
- Áfyllingar og frágangur á vörum í verslun og lager
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum
- Rík þjónustulund og sölugleði
- Jákvæðni, metnaður og framtakssemi
- Áhugi á tísku
- Góð íslenskukunnátta
- Mjög góður starfsmannaafsláttur af vörum Bestseller













