Byko
Byko
Byko

BYKO Akureyri - Sölufulltrúi í hólf og gólf

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að starfa í fullt starf hjá okkur í hólf og gólf í BYKO á Akureyri.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími: Alla virka daga frá kl. 08-16, þriðja hver vika frá kl. 10-18 og einn til tvo laugardaga í mánuði frá kl. 10-16.

Við leitum að starfsfólki með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Gott auga fyrir útliti og hönnun er kostur

Helstu verkefni:

  • Veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf við val á bestu mögulegu lausnum
  • Áfylling, uppstilling og eftirfylgni með verðmerkingum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til 13. júlí 2025 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Nánari upplýsingar veitir Egill Snær Þorsteinsson, verslunarstjóri ([email protected]).

Advertisement published4. July 2025
Application deadline13. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags