IKEA
IKEA
IKEA

Sölufulltrúi

Hefur þú áhuga á að aðstoða fólk við að gera sér fallegt og þægilegt heimili, hjálpa því að velja sjálfbærari kosti og einfalda líf sitt?

Gakktu til liðs við frábæra söluteymið okkar þar sem þér gefst kostur á að þróast og vaxa í starfi.

Um fullt starf að ræða á 2-2-3 vöktum, fullt starf alla virka daga og hlutastarf.
Vinnutími 2-2-3 vaktaplans er frá kl. 11-20, vinnutími alla virka daga er frá 10-18 og vinnutími hlutastarfs er aðra hverja helgi frá 11-20 og 1-2 virkir dagar í viku frá kl. 16-20.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst í að veita viðskiptavinum verslunarinnar þjónustu og aðstoð, halda útliti verslunarinnar söluhvetjandi og snyrtilegu ásamt því að tryggja það að vörur deildarinnar séu rétt verðmerktar, áfyllingar og ýmis tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Söluhæfileikar eða áhugi á sölu og þjónustu
  • Jákvæðni og dugnaður
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Samviskusemi og drifkraftur
  • Góð og rík þjónustulund
  • Áhugi á hönnun og húsbúnaði
  • Almenn tölvuþekking
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum. 
  • Aðgengi að sumarbústað til einkanota.
  • Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti.
  • Ávexti og hafragrautur í boði.
  • Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila. Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
  • Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.
  • Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.
  • Skemmtilegir vinnufélagar.
  • Afsláttur af IKEA vörum.
Advertisement published4. July 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kauptún 4, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Customer checkoutPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags