

Hlutastarf í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi í hlutastarf hjá okkur í hreinlætistækjadeild í BYKO Breidd.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími: Önnur hver helgi, laugardaga frá 10-18 og sunnudaga frá 11-17. Einn virkur dagur í viku frá 15/16-18:30.
Við leitum að starfsmanni með:
- Reynslu af afgreiðslustörfum, skilyrði
- Þekking og reynsla af hreinlætistækjum o.s.frv.
- Þekking og reynsla af pípulögnum, kostur
- Ríka þjónustulund
- Nákvæm vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Almenna tölvukunnáttu
- Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Steinn Þorsteinsson, ([email protected]) svæðisstjóri endurbæta.












