ICEWEAR
ICEWEAR
ICEWEAR

Verslunarstjóri - Icewear

Icewear leitast eftir að ráða til starfa drífandi og metnaðarfullan verslunarstjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni:

Störf verslunarstjóra Icewear eru fjölbreytt og spennandi. Verslunarstjóri þarf að sinna margvíslegum verkefnum í daglegum rekstri og þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og útsjónarsemi.

Starfið felst m.a. í almennum verslunarstörfum og sölumennsku, starfsmannahaldi, birgðastýringu, framsetningu í verslun, vörupöntunum, gerð vaktaplana auk tilfallandi verkefna.

Umsóknarfrestur er til 22. október 2025.

Almennt um Icewear:

Icewear er leiðandi fyrirtæki á útivistarmarkaði og á sögu að rekja allt aftur til ársins 1972.

Vörulína Icewear er stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir börn og fullorðna. Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Icewear leggur ávallt mikið upp úr góðum verðum og góðri þjónustu, enda er útivist fyrir alla.

Verslanir Icewear eru í dag 33 talsins og eru staðsettar víðs vegar um landið.

Þín útivist - Þín ánægja

www.icewear.is

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af verslunarstjórnun 

·         Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

·         Sölumennska og góð þjónustulund

·         Frumkvæði og metnaður í starfi

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Advertisement published1. October 2025
Application deadline22. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags