Bílaumboðið Una
Bílaumboðið Una
Bílaumboðið Una

Söluráðgjafi hjá Bílaumboðinu Unu

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi aðila til að sinna starfi söluráðgjafa hjá Bílaumboðinu Unu sem er bílaumboð sem selur og þjónustar bíla frá kínverska bílaframleiðandanum XPENG. Viðkomandi mun einnig sinna öðrum verkefnum sem snúa að upplifun viðskiptavina og fær tækifæri til að móta starfið.

Bílaumboðið Una, Askja, Dekkjahöllin og Landfari eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllinni í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Við bjóðum einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og vexti á þessu nýja og spennandi vörumerki á Íslandi þar sem verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Söluráðgjöf og önnur sértilgreind verkefni
  • Móttaka viðskiptavina og símsvörun
  • Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð
  • Úthringiherferðir
Við leitum að liðsfélaga með
  • Drifkraft og frumkvæði
  • Reynslu af sölu og eða þjónustustörfum er kostur
  • Yfirburða þjónustulund og mikla samskiptahæfni 
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og vilja til að ná árangri í starfi
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu
  • Gild ökuréttindi
Advertisement published1. October 2025
Application deadline12. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Vínlandsleið 6-8, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags