Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir

Langar þig að starfa á metnaðarfullum vinnustað við krefjandi og fjölbreytt verkefni?

Stéttafélagið leitar að skipulögðum og metnaðarfullum verkstjóra í jarðvinnu- og veitulagnadeild fyrirtækisins.

Stéttafélagið er ört stækkandi og framsækið verktakafyrirtæki. Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, veitulagna, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs.

Félagið er mjög virkt á útboðsmarkaði. Meðal verkefna eru gerð viðbygginga við skólamannvirki, endurbætur fasteigna sveitarfélaga, nýbyggingar á eigin vegum, veituverkefni fyrir ýmsar veitustofnanir, gatnagerð og lóðaframkvæmdir.

Fyrirtækið starfar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Vegna góðrar verkefnastöðu viljum við fjölga í hópi verkstjóra félagsins.

Við bjóðum upp á gott og sveigjanlegt starfsumhverfi. Auðvelt er að þróast í starfi hjá ört vaxandi fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn verkstjórn
  • Mannaforráð
  • Skipulag og áætlanagerð
  • Samskipti við verkkaupa og eftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn er skilyrði
  • Reynsla á sviði jarðvegsframkvæmda og veitulagna er mikill kostur. En reynsla af annars konar mannvirkjagerð getur einnig nýst vel í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Vinnuvéla- og meiraprófsréttindi eru kostur
Advertisement published5. November 2025
Application deadline20. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgahella 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressure
Professions
Job Tags