

Verkefnastjóri stefnu
Við leitum að drífandi verkefnastjóra sem hefur þekkingu og reynslu af mótun og framkvæmd stefnu. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa í teymi Stefnu og samskipta sem fellur undir skrifstofu forstjóra.
Við leitum að öflugum verkefnastjóra með háskólamenntun sem nýtist í starfi, reynslu af stefnuvinnu og haldbæra reynslu af verkefnastjórnun. Leitað er að lausnamiðunum, jákvæðum og skiplögðum einstaklingi með góða greiningarhæfni og frumkvæði sem getur jafnt unnið sjálfstætt sem í hópi og er tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni.
Viðkomandi vinnur náið með forstöðumanni stefnu og samskipta.
Helstu verkefni
- Samhæfa og leiða framkvæmd meginstefnu fyrirtækisins í samræmi við markmið og framtíðarsýn
- Stuðningur við stjórnendur við mótun og framkvæmd stuðningsstefna
- Samræming verkefna, aðgerða, mælinga og ferla sem tengjast mótun og framkvæmd stefna félagsins.
- Regluleg samskipti og upplýsingamiðlun til stjórnenda og starfsfólks
- Hafa umsjón með gæðaeftirliti, áhættumati og árangursmati tengdu framkvæmd stefnu
- Verkefnastjórn stefnumótandi verkefna í samræmi við umbreytingaaðferðafræði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í stjórnun, viðskiptafræði, stefnumótun eða sambærilegu
- Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu stefnu eða breytinga
- Framúrskarandi þekking og áhugi á málefnum sem starfinu tengjast
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, greiningarhæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Þekking og reynsla af sambærilegum störfum
- Þekking á umhverfi og rekstri flugvalla er kostur
Starfsstöð er í Hafnarfirði og á Keflavíkurflugvelli.
Isavia býður upp á vinnustað þar sem lögð er mikil áhersla á uppbyggilega fyrirtækjamenningu og fyrirmyndar aðstöðu fyrir starfsfólk.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2026
Upplýsingar um starfið veitir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður Stefnu og samskipta, netfang[email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, á tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
English
Icelandic
















