Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna

Orka náttúrunnar leitar að framsýnum leiðtoga í hlutverk forstöðumanns einstaklings- og fyrirtækjalausna.


Um er að ræða mikilvægt hlutverk í framkvæmdastjórn félagsins.

Sem forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna berð þú ábyrgð á þjónustu ON við viðskiptavini á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Þú leiðir öflugt teymi og mótar stefnu með það að markmiði að vöruframboð og þjónustulausnir séu í senn arðbærar og eftirsóknarverðar.


Svið einstaklings- og fyrirtækjalausna gegnir lykilhlutverki í því að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina, drífa áfram orkuskipti í samgöngum og tryggja tengingu milli markaðar, vöru, tækni og reksturs.

Forstöðumaður leiðir sviðið í nánu samstarfi við framkvæmdastjórn og ber ábyrgð á heildarárangri þess.


Ef þú vilt taka virkan þátt í að móta raforkulausnir til framtíðar, býrð yfir framúrskarandi samskiptafærni og brennandi áhuga á nýsköpun þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á áherslum og markmiðum sviðsins til framtíðar, t.d. við ræktun viðskiptatengsla, þróun vöruframboðs og þjónustu við ánægðustu viðskiptavini á raforkumarkaði undanfarin 7 ár skv. Íslensku ánægjuvoginni
  • Mótun og rekstur stefnu sviðsins í samræmi við heildarstefnu Orku náttúrunnar
  • Ábyrgð á uppbyggingu og rekstri hleðsluinnviða, þ.m.t. hleðsluáskriftum og almenningsneti
  • Heildstæð vöruþróun sviðsins og nýsköpun í þjónustulausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki
  • Heildræn yfirsýn yfir rekstur sviðsins, með áherslu á festu, virkt kostnaðareftirlit, tekjustýringu, verðmótun og skilvirka forgangsröðun
  • Ábyrgð á árangursmælingum (KPI), áætlunargerð og eftirfylgni
  • Arðsemis- og markaðsgreiningar með áherslu á umbóta- og vaxtartækifæri
  • Leiðtogahlutverk gagnvart stjórnendum sviðsins og stuðningur við faglega forystu þeirra
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og stefnumótun félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að árangursdrifnum leiðtoga sem býr yfir:

  • Marktækri reynslu af því að byggja upp liðsheild og leiða til árangurs
  • Umtalsverðri stjórnunar- og rekstrarreynslu úr samkeppnisumhverfi
  • Reynslu af sölu, þjónustu eða viðskiptastýringu, helst í flóknu og tæknitengdu umhverfi
  • Ríkri umbótahugsun auk framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfileika
  • Þekkingu og reynslu af því að nýta tækni og nýsköpun til að bæta þjónustuupplifun
  • Sterkri greiningafærni og reynslu af arðsemis-, kostnaðar- og tekjugreiningum
  • Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Metnaði, drifkrafti og seiglu til að uppfylla krefjandi markmið
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði, viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Advertisement published10. February 2026
Application deadline22. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysis
Work environment
Professions
Job Tags