
Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands hefur tryggt uppbyggingu Háskóla Íslands í yfir 90 ára með því að afla fjár til húsbygginga, viðhalds og tækjakaupa.
HHÍ er afþreyingarfyrirtæki sem rekur í dag þrenns konar peningahappdrætti: flokkahappdrætti, skyndihappdrætti (Happaþrennan) og skjávélahappdrætti (Gullnáman). Innan Happdrættis Háskóla Íslands starfar samheldinn hópur drífandi starfsmanna að því að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands til framtíðar.

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild
Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild ber ábyrgð á að stýra og framkvæma verkefni á sviði happdrættisvara og markaðsmála. Verkefnastjóri tekur virkan þátt í vöruþróun og markaðsgreiningu og styður þannig við stefnumótun HHÍ og tryggir að vöruframboð og markaðssetning endurspegli þarfir viðskiptavina, samkeppnisumhverfi og þær reglur sem gilda um starfsemina. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæðis, auk náins samstarfs við allar deildir HHÍ sem og utanaðkomandi samstarfsaðila. Við leitum að drífandi einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á markaðsmálum og nýtir tækni og gögn til að hámarka árangur og bæta upplifun viðskiptavina.
Verkefnastjóri heyrir undir markaðs- og rekstrarstjóra Happdrætta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina árangur happdrættisvara með nýtingu sölutalna og markaðsgagna til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku og leggja fram tillögur að umbótum og nýjungum.
- Taka virkan þátt í mótun vörustefnu og innleiðingu nýrra vara með áherslu á nútímalega neytendahegðun.
- Kortleggja og bæta upplifun viðskiptavina á stafrænum miðlum til að auka þátttöku og tryggja framúrskarandi þjónustu.
- Taka þátt í mótun skilaboða og staðfærslu happdrættisvara í samstarfi við auglýsingastofu.
- Tryggja samræmi milli vöruframboðs og markaðssetningar.
- Taka þátt í innleiðingu nýrra vara og vera tengiliður milli hagsmunaaðila.
- Halda utan um verkáætlanir, kostnað og framvindu verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegu sviði.
- Þekking og/eða reynsla af vöruþróun, markaðsgreiningu eða sambærilegu sérfræðistarfi er kostur.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frábær samskiptahæfni, bæði skrifleg og munnleg.
- Frumkvæði og áhugi á þróun og umbótum.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta og færni í ensku, bæði í ræðu og riti.
Advertisement published17. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DriveProactiveClean criminal recordPositivityHuman relationsAmbitionIndependenceTeam workMeticulousness
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri í Tæknifræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Markaðsfulltrúi
bpro

Verkefnastjóri
Landsbankinn

Gallup - Viðskiptastjóri
Gallup

Verkefnastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Verkefnastjóri á markaðssamskiptasviði
Íslandsstofa

Viðskiptastjóri
Vistor

Verkefnastjóri framkvæmda
Náttúruverndarstofnun

Verkefnastjóri stefnu
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Strategy & Transformation Manager
Icelandair