Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri í Tæknifræðideild

Háskólinn í Reykjavík leitar að kraftmiklum og skipulögðum verkefnastjóra í fjölbreytt og krefjandi starf í tæknifræðideild. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður og hafa ánægju af því að vinna með fólki.

Tveir verkefnastjórar starfa á skrifstofu tæknifræðideildar auk skrifstofustjóra. Skrifstofan vinnur í nánu samstarfi við deildarforseta, fagstjóra, kennara, nemendur og stoðdeildir skólans.

Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Starfið veitir ýmis tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir nemendur.

STARFSSVIÐ

  • Þjónusta og samskipti við nemendur og starfsfólk deildar
  • Stuðningur við skipulag námsleiða í samvinnu við fagstjóra
  • Virk þátttaka í faglegri þróun námsleiða, m.a. með yfirferð námskeiða sem tilheyra iðnfræði og byggingafræði
  • Skráning námskeiða, kennara og kennslubóka
  • Leiðsögn til umsækjanda um nám við deildina og úrvinnsla umsókna
  • Uppfærsla efnis á vef deildarinnar og á heimasíðu skólans
  • Þátttaka í stundatöflugerð og gerð kennsluskrár
  • Ýmiskonar gagnaöflun og úrvinnsla
  • Þátttaka í þróun og kynningu á náminu, t.d. á nýnemadögum og Háskóladeginum
  • Stuðningur með kennara með framsetningu á kennsluvefnum Canvas
  • Önnur tilfallandi störf

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í tali og rituðu máli
  • Góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu eða reynslu af kennslufræði

Tæknifræðideild er ein stærsta deild skólans með um 650 nemendur, 13 akademísk stöðugildi og 4 starfsmenn á skrifstofu og á rannsóknarstofum. Deildin heldur utan um nám í iðnfræði (diplóma), tæknifræði (BSc) og byggingafræði (BSc), og sérhæft örnám fyrir atvinnulífið. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi háskólaumhverfi og býður upp á tækifæri til að hafa áhrif á þróun náms í deildina. Um 150 nemendur útskrifast úr tæknifræðideild árlega.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Fyrir frekari upplýsingar er áhugasömum boðið að hafa samband við Hjördís Láru Hreinsdóttur, skrifstofustjóra tæknifræðideildar ([email protected]), eða eða mannauðsdeild HR ([email protected]).

Advertisement published17. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags