
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Verkefnastjóri óskast í eignadeild
Kópavogsbær óskar eftir verkefnastjóra ástandsskoðunar fasteigna og eftirlits með viðhaldsframkvæmdum. Einnig er fólgið í starfinu að vera eldvarnarfulltrúi Kópavogsbæjar, ásamt umsýslu með fasteignum í eigu Kópavogsbæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ástandsskoðun allra fasteigna Kópavogsbæjar
- Gerð útboðsgagna, kostnaðar- og viðhaldsáætlana
- Eftirlit og umsjón með verktökum bæjarins
- Skráning gagna í skjalakerfi
- Öflun og yfirferð gagna sem snúa að eldvörnum
- Samskipti við slökkvilið
- Úttektir á mannvirkjum með slökkviliði
- Yfirferð og framkvæmd umbóta sem snúa að flóttaleiðamyndum og rýmingaráætlunum
- Starfar með öryggisnefndum stofnanna og stýrihópi öryggismála hvað varðar eldvarnir, skipulag og framkvæmd brunaæfinga og eldvarnanámskeiða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkfræði- eða tæknimenntun á háskólastigi
- Reynsla af viðhalds- og byggingarframkvæmdum
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Námskeið fyrir eldvarnarfulltrúa kostur
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur
- Þekking á brunavörnum, brunatækni og skipulagslegu fyrirkomulagi mannvirkja
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á teikniforritum, t.d. Autocad og/eða Revit kostur
- Þekking á notkun viðhaldskerfis kostur
- Þekking á skjalavistunarkerfi ONE kostur
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 klukkustunda vinnuvika.
Advertisement published24. March 2026
Application deadline16. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Skrifstofa Alþingis leitar að sérfræðingum til starfa á þingfunda- og útgáfusviði
Skrifstofa Alþingis

Ábyrgðaraðili stjórnkerfa virkjunum ON
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur á eigna- og viðhaldssviði
Félagsbústaðir

Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Klasi

Reynslubolti óskast í innivistar- og byggingartækniteymi VERKVISTAR
VERKVIST

Sérfræðingur vélbúnaðar- og lagnakerfa í virkjunum ON
Orka náttúrunnar

Framkvæmdastjóri - Þjónusta
Sjúkratryggingar Íslands

Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit
Sjúkratryggingar Íslands

Netöryggisstjóri (Cypersecurity Manager)
Kvikna medical

Sérfræðingur í hagdeild
Norðurál

Gagnasérfræðingur – Data & Analytics
Origo ehf.

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin