
Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Klasi leitar að öflugum verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem gefst kostur á að koma að umfangsmiklum framkvæmdaverkefnum.
Hlutverk og ábyrgð:
- Verkefnastjórnun framkvæmda.
- Kostnaðarmat framkvæmdaverkefna.
- Þátttaka í hönnunarferli framkvæmdaverkefna og samningagerð.
- Rekstur og eftirfylgni verksamninga.
- Samskipti og samvinna við ráðgjafa, verktaka og aðra hagsmunaaðila.
Hæfni og eiginleikar:
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, byggingafræði eða sambærilegt.
- Reynsla af verkefnastjórnun framkvæmda.
- Góð greiningarhæfni ásamt hæfni til að setja fram tölulegar upplýsingar á aðgengilegan hátt.
- Framúrskarandi samskiptafærni, jákvætt viðhorf og sveigjanleiki.
- Frumkvæði, metnaður og gagnrýnin, lausnamiðuð hugsun.
Klasi er þekkingarfyrirtæki í þróun fasteigna og hefur í yfir 20 ár komið að mörgum víðamiklum fasteignarþróunar- og framkvæmdaverkefnum. Frá upphafi hefur félagið verið leiðandi á sviði fasteignareksturs og fasteignaþróunar á Íslandi, bæði í eigin verkefnum og verkefnum fyrir ótengda aðila.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Nánari upplýsingar veita Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]), hjá Vinnvinn.
English
Icelandic










