Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Skrifstofustjóri

Stekkjaskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra í 80 – 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026.

Leitað er eftir áhugasömum og kraftmiklum skrifstofustjóra til að starfa á skrifstofu skólans og til að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri. Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendateymi skólans.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og ber ábyrgð á samskiptum skóla við þá sem eiga erindi við skólann
  • Umsjón með viðveruskráningu starfsmanna í Vinnustund
  • Skjölun og frágangur gagna s.s. nemendagagna og annarra gagna
  • Heldur utan um mataráskriftir við skólann
  • Umsjón með bókhaldi, innkaupum rekstrarvara, skólabóka og birgðahaldi
  • Umsýsla ráðningasamninga í samvinnu við stjórnendur og undirbúningur fyrir launakeyrslu
  • Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og forráðamenn
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf t.d. á sviði mannauðsmála, viðskiptafræði, stjórnunar eða annarra sviða sem nýtast í starfi
  • Mjög góð þekking og/eða reynsla af skrifstofustörfum
  • Góð tölvukunnátta skilyrði s.s. excel, word, bókhaldsforrit og fleira
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Sveigjanleiki til að geta unnið undir álagi
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
  • Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni
  • Stundvísi og áreiðanleiki
Advertisement published20. March 2026
Application deadline8. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Heiðarstekk 10
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags