VERKVIST
VERKVIST
VERKVIST

Reynslubolti óskast í innivistar- og byggingartækniteymi VERKVISTAR

Hjá VERKVIST leitum við að öflugum og reynslumiklum sérfræðingi til liðs við innivistar- og byggingartækniteymið okkar. Við leitum að einstaklingi sem vill taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði ástandsúttekta, rakaskimunar, rakamælinga, sýnatöku, ráðgjafar, verklýsinga, útboðsgagna, kostnaðarmats, eftirlits og verkefnastjórnar.

Við erum sérhæfð verkfræðistofa með skýra sýn: byggingar eru fyrir fólk. Við viljum leggja okkar af mörkum til að bæta byggingariðnaðinn, auka gæði mannvirkja og stuðla að því að byggingar séu vistvænar, heilnæmar, endingargóðar og hannaðar með þarfir fólks að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ástandsúttektir bygginga
  • Rakaskimun, rakamælingar og sýnatökur
  • Fagleg ráðgjöf til verkkaupa og annarra hagaðila
  • Gerð verklýsinga, kostnaðarmats og útboðsgagna
  • Eftirlit með framkvæmdum
  • Verkefnastjórn og eftirfylgni verkefna
  • Þátttaka í þróun lausna sem bæta gæði bygginga og innivistar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur reynslu sem nýtist í starfi
  • Hefur menntun í t.d. húsasmíði, byggingafræði, byggingartækni, verkfræði, líffræði, lýðheilsu eða aðra menntun sem nýtist.
  • Vinnur sjálfstætt, skipulega og af faglegum aga
  • Hefur frumkvæði og sterka ábyrgðarkennd
  • Hefur áhuga á að bæta byggingariðnað og gæði mannvirkja
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til starfsþróunar og sérhæfingar
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Sterkt teymi og gott vinnuumhverfi
  • Vinnustað þar sem við viljum sjá fólkið okkar blómstra og vaxa í takt við áhugasvið og styrkleika
Advertisement published24. March 2026
Application deadline8. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags