Félagsbústaðir
Félagsbústaðir

Verkefnastjóri á eigna- og viðhaldssviði

Við hjá Félagsbústöðum erum að leita að öflugum sérfræðing til starfa á eigna- og viðhaldssvið. Við leitum að kraftmiklum og fjölhæfum einstakling til að sjá um fjölbreytt verkefni við skipulag og framkvæmdir viðhalds á eignum félagsins.

Félagsbústaðir er öflugt og traust fasteigna- og þjónustufyrirtæki á leigumarkaði með yfir 3.200 íbúðir til útleigu í Reykjavík. Á skrifstofu félagsins starfa að jafnaði 30 manns í anda gilda um samvinnu, virðingu og góða þjónustu.

Félagsbústaðir eru sjálfstætt hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi.

Nánari upplýsingar um Félagsbústaði má finna á www.felagsbustadir.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:  

  • Umsjón og ábyrgð á úttektum íbúða  

  • Gerð kostnaðaráætlana, verkbeiðna og tilboðsgagna 

  • Skipulag og eftirlit með verklegum framkvæmdum 

  • Reglulegt eftirlit eigna og umsjón tilfallandi viðgerða og viðhalds 

  • Vinna við minniháttar viðgerðir og viðhald 

  • Skráning mála í gagnagrunna 

  • Yfirferð reikninga 

  • Húsnæðisskoðanir og samskipti við leigutaka 

  • Samskipti við húsfélög 

  • Samskipti við iðnaðarmenn og verktaka  

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:  

  • Iðnmenntun, sveinspróf  

  • Reynsla og þekking á viðhaldi fasteigna  

  • Færni  í tölvunotkun og notkun upplýsingakerfa 

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

  • Góð samskiptafærni, samviskusemi og lausnamiðuð hugsun 

  • Bílpróf 

Advertisement published20. March 2026
Application deadline6. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Þönglabakki 4, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Journeyman licensePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags