Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Framkvæmdastjóri - Þjónusta

Sjúkratryggingar leita að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni.

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og jafnt aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði.

Sjúkratryggingar miðla með samningum og greiðslukerfum miklum meirihluta þess fjármagns sem rennur til íslenskrar heilbrigðisþjónustu, um 300 milljarða kr. á ári. Hagkvæm og góð nýting þessara fjármuna er einn lykilþáttur í að tryggja árangur heilbrigðisþjónustunnar.

Framkvæmdastjóri verður hluti af stjórnendateymi Sjúkratrygginga og á sæti í fimm manna framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra og ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun ásamt daglegri stjórnun.

Miklar breytingar standa nú yfir hjá Sjúkratryggingum sem ætlað er að efla starfsemina til að bæta árangur og gæði. Ef þú býrð yfir metnaði til að leiða og móta mikilvæga starfsemi innan íslenska heilbrigðiskerfisins í gagnadrifnu, umbótamiðuðu og lifandi umhverfi hvetjum við þig til að sækja um.

Sjúkratryggingar veita miklum meirihluta landsmanna beina eða óbeina þjónustu á ári hverju. Starfið felur því í sér einstakt tækifæri til að móta mikilvægan þátt í starfsemi Sjúkratrygginga og stuðla að aðgengilegri, skilvirkri og faglegri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.

Um er að ræða lykilstöðu þar sem unnið er að þróun þjónustu, einföldun ferla og stuðningi við stefnumótun og ákvarðanatöku. Markviss þjónusta stofnunarinnar gagnvart notendum heilbrigðisþjónustunnar er einn lykilþáttur í að tryggja árangur hennar.

Á sviðinu starfa um 60 manns. Meðal hlutverka sviðsins er að taka ákvörðun um rétt fólks til þess að nýta tiltekna heilbrigðisþjónustu bæði hér á landi og erlendis. Þá annast sviðið afgreiðslu umsókna um greiðslur vegna sjúklinga- og slysatrygginga. Árlega eru afgreiddar nálægt því ein umsókn á hvern landsmann. Stjórnandi stuðlar að góðri þjónustuupplifun allra þeirra sem þurfa að hafa samskipti við Sjúkratryggingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra þjónustusviði og stuðla að góðri og heildstæðri þjónustuupplifun allra þeirra sem eiga samskipti við Sjúkratryggingar, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fagaðila
  • Hafa yfirumsjón með verkefnum þjónustumiðstöðvar sem annast framlínuþjónustu Sjúkratrygginga
  • Stuðla að miðlun skýrra og aðgengilegra upplýsinga um sjúkratryggingar til einstaklinga og fagaðila
  • Leiða umbætur í þróun þjónustu og þjónustuferla meðal annars með innleiðingu á aukinni sjálfvirkni og gervigreindarlausnum
  • Tryggja markvissa málsmeðferð og að ákvarðanir samræmist regluverki, lögum og öðrum viðmiðum 
  • Greina og miðla upplýsingum um þjónustu til stuðnings stefnumótunar og ákvarðanatöku
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða er kostur
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, umbótamiðaðri hugsun og farsælli stjórnunarreynslu
  • Umfangsmikil reynsla af uppbyggingu og þróun þjónustu og þjónustuferla
  • Farsæl reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun, stafrænni umbreytingu og uppbyggingu liðsheildar
  • Framúrskarandi greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að miðla flóknum upplýsingum á íslensku og ensku í ræðu og á riti
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking og reynsla af heilbrigðisþjónustu er kostur 
Advertisement published21. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Business strategy
Work environment
Professions
Job Tags