Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds

Reykjanesbær leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða reikningshald sveitarfélagsins. Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í fjármálastjórn bæjarins og ber ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar og stofnana og sveitarfélagsins í heild. Forstöðumaður gegnir einnig mikilvægu hlutverki í uppgjörum, greiningu og fjármálastjórn sveitarfélagsins.

Við leitum að einstaklingi með sterka faglega þekkingu og metnað til að stuðla að faglegu og skilvirku rekstrarumhverfi. Forstöðumaður reikningshalds starfar í nánu samstarfi við fjármálastjóra og aðra stjórnendur og tekur virkan þátt í áframhaldandi þróun fjármálastjórnunar Reykjanesbæjar.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar og stofnana
  • Dagleg stýring og utanumhald reikningshalds sveitarfélagsins
  • Umsjón með fjárhagskerfinu Navision
  • Afstemmingar og lokafrágangur mánaðaruppgjöra
  • Vinna við árshlutauppgjör og ársreikninga í samstarfi við fjármálastjóra
  • Skýrslugerð, greiningar og upplýsingagjöf úr bókhaldi
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í bókhalds- og uppgjörsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærileg menntun
  • Reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu skilyrði
  • Reynsla á endurskoðunarskrifstofu kostur
  • Reynsla af gerð ársreikninga og samstæðureikninga æskileg
  • Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil skilyrði
  • Greiningarhæfni, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
Hlunnindi:
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published16. March 2026
Application deadline30. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Write up
Professions
Job Tags