Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Þjónustukjarni- heimili fatlaðs fólks, sumarafleysingar

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks í þjónustukjarna Suðurgötu í Reykjanesbæ.

Þjónustukjarni Suðurgötu er sólarhringsþjónusta fyrir fatlað fólk. Þar búa átta íbúar með ólíkar stuðningsþarfir. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða tvö tímabundin 80% vaktavinnustörf þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Ráðning er frá 15. júní og er starfstímabil um 2-3 mánuðir.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta
  • Aðstoð við heimilishald
  • Aðstoð við persónulegt hreinlæti
  • Stuðningur við samfélagsþátttöku íbúa bæði innan og utan heimilis
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum með fötluðu fólki er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og þjónustulund
  • Góð Íslenskukunnátta
  • Hreint sakarvottorð
Fríðindi í starfi

•    Bókasafnskort
•    Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
•    Gjaldfrjáls aðgangur í sund
•    Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Advertisement published13. March 2026
Application deadline26. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Suðurgata 19, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags