Akureyri
Akureyri
Akureyri

Sumarstörf Velferðarsvið: Karlar í velferðarþjónustu

Langar þig að kynnast nýju fólki og sjálfum þér betur í leiðinni? Mæta í vinnuna þar sem enginn dagur er eins og hafa gaman?

Velferðarsvið Akureyrarbæjar leitar að kraftmiklum og jákvæðum karlmönnum í sumarafleysingar sumarið 2026. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf þar sem mannleg samskipti og umhyggja eru í forgrunni. Ef þú vilt upplifa sumar sem skiptir máli – þá er þetta tækifærið!

Í boði eru störf í dagvinnu sem og í vaktavinnu, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Góð liðsheild á starfsstöðvum okkar spilar stóran þátt í því að fólki líði vel og að veitt sé góð þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsfólk okkar sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi:

  • Stuðningur við fatlað fólk til að lifa sem eðlilegustu lífi. Starfsstöðvar eru íbúðakjarnar, íbúðir með þjónustu eða sambýli.
  • Aðstoð til eldri borgara og öryrkja við athafnir daglegs lífs.
  • Stuðningur við fötluð börn og ungmenni í tímabundinni dvöl í skammtímaþjónustu Brekkukots.
  • Starf í sumarvistun með fötluðum börnum og aðstoð til þeirra við að njóta menningar-, tómstunda- og félagslífs.
  • Starf í athvarfinu Laut, fyrir fatlað fólk sem miðar að þátttöku þeirra í félagslífi.
  • Unnið er eftir þjónustuáætlun, þjálfunaráætlun og/eða dagskipulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfileiki og áhugi á að starfa með fólki.
  • Stundvísi, sveigjanleiki, samviskusemi, góðvild, gagnkvæm virðing og jákvætt viðhorf til fólks.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur og skal tekið fram í umsókn.
  • Geta til að vinna undir álagi og taka sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published13. March 2026
Application deadline6. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags