

Velferðarsvið: Teymisstjóri farsældar barna
Brennur þú fyrir farsæld barna?
Velferðarsvið Akureyrar auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu teymisstjóra farsældar barna. Um er að ræða ótímabundna stöðu.
Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um málefni aldraðra. Hlutverk sviðsins er að bjóða upp á ráðgjöf og beita úrræðum auk þess sem sviðið rekur þjónustukjarna og vinnustaði fyrir fatlað fólk. Þjónustusvæðið nær yfir Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp skv. þjónustusamningum við sveitarfélögin um ráðgjafarþjónustu og samningi sveitarfélaganna um málaflokk fatlaðra.
Teymisstjóri farsældar barna heldur utan um málaflokkinn í samvinnu við forstöðumann félagsþjónustu og hefur yfirsýn. Hann beitir sér fyrir þróun verkferla og nýjunga í þjónustunni í samstarfi við forstöðumann og starfsfólk og hefur frumkvæði að mikilvægu samstarfi innan félagsþjónustunnar og utan. Vinnur náið með forstöðumanni skólaþjónustu, forstöðumanni barnaverndar, Barna og fjölskyldustofu og fleiri aðilum að innleiðingu farsældarlaganna.
Teymisstjóri stýrir teymi þeirra starfsmanna sem vinna við að þjónusta börn og barnafjölskyldur samkvæmt Lögum um samþætta þjónustu farsældar barna nr. 86 2021. Í því felst að útdeila verkefnum (málum) til þeirra sem vinna í málaflokknum og veitir starfsfólki nauðsynlegan stuðning við vinnslu mála. Teymi farsældar barna er skipað teymistjóra og ráðgjöfum farsældarteymis. Auk utanumhalds og verkstjórnar vinnur teymisstjóri sjálfur sem málstjóri.
Teymisstjóri leiðir faglegt starf og fer með daglega stjórnun teymis.
- Útdeilir verkefnum til teymis, veitir þeim eftirfylgni og veitir starfsfólki stuðning til þess að vinna sín mál vel og af fagmennsku.
- Heldur utan um og greinir eðli mála á 2. stigi samþættingar.
- Setur og stýrir teymisfundum farsældarteymis, yfirferð á stöðu mála, tryggir vettvang samtals, umræðu um leiðir og samstillir. Tryggir ritun fundargerða.
- Fylgjast með rannsóknum, reynslu annarra þjóða og nýjungum sem eiga sér stað bæði innanlands sem utan.
- Er leiðandi er kemur að þróun farsældar.
- Tryggir framgang verkefna innan farsældarteymis.
- Ber ábyrgð á söfnun tölulegra upplýsinga varðandi þjónustuna, s.s. varðandi fjölda þjónustuþega og kostnað.
- Leiða og skipuleggja samskipti við aðrar stofnanir er sinna samþættingu
- Er málstjóri í samþættri farsældarþjónustu. Í því felst að vinna mál barns/fjölskyldu, meta þörf fyrir úrræði og leiða alla þjónustuaðila að borðinu til þess að barn/fjölskylda fái viðeigandi aðstoð. Sinnir hlutverki málstjóra sbr. lög nr. 86/2021.
- Aðstoðar við að tryggja mat og/eða greiningu á þörfum barns. Slíkt mat getur farið fram hjá málstjóranum sjálfum eða öðrum aðilum sem málstjóri vísar til.
- Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. og samskipta innan fjölskyldu. Um er að ræða upplýsingagjöf, leiðbeiningar m.a. um opinbera þjónustu og persónulegan stuðning.
- Ber ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýrir stuðningsteymi.
- Er í samstarfi við börn og foreldra, starfsfólk á velferðarsviði og aðra þjónustuveitendur.
- Fær úthlutað málum og fundar með forsjáraðilum og skóla. Setur upp áætlun sem miðar að því að ná þeim markmiðum sem ákveðin eru. Skrifar dagnótur, skráir áhorf og samtal við börn í þjónustu, fundi og annað það sem skiptir máli við vinnslu máls.
- Ráðleggur út frá úrræðalista sveitarfélagsins hvað barn í þjónustu þarf á að halda hverju sinni og nýtir valdeflingu eða aðrar gagnreyndar aðferðir sem henta þeim markmiðum sem sett hafa verið.
- Önnur verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni
- Gerð er krafa um háskólamenntun (B.A./B.S.) sem nýtist í starfi, s.s. félagsráðgjöf, uppeldis- og menntunarfræði, þroskaþjálfun.
- Framhaldsmenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi er æskileg.
- Haldbær og farsæl reynsla af starfi með börnum.
- Haldbær og farsæl reynsla af starfi innan félagsþjónustu.
- Þekking á stöðu barna og helstu úrræðum sem þeim og fjölskyldu þeirra stendur til boða.
- Rík krafa er gerð um samskiptafærni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
- Reynsla af teymisstjórn æskileg.
- Umbótamiðuð hugsun.
- Góð færni til að tjá sig á íslensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
- Góð færni til að tjá sig á ensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samverópskum tungulmálaramma).
- Bera virðingu fyrir fjölbreytileika einstaklinga og réttindum þeirra.
- Hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
- Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Icelandic
English










