Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg

Leikskólakennari

Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu. Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla sem og öðrum lögum er við eiga.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðist vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Þátttaka í uppeldi og menntun leikskólabarna. 

·         Að fylgjast með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins. 

·         Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og faglegum verkefnum.  

·         Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 

·         Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum. 

·         Að gæta að öryggi leikskólabarna, menntun, þroska þeirra og líðan. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein. 

·         Reynsla í leikskólastarfi æskileg. 

·         Færni í mannlegum samskiptum. 

·         Hæfni og áhugi í starfi með börnum. 

·         Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. 

·         Færni í ræðu og riti. 

·         Góð íslenskukunnátta æskileg. 

Fríðindi í starfi

·         Tímabundin viðbótarlaun 

·         Yfirvinnugreiðslur (6 klst.) 

·         Ívilnun vegna aksturs 

·         Fatastyrkur 

·         Frítt fæði 

·         Stytting vinnuvikunnar 

·         Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar 

·         Skapandi starfsumhverfi 

Advertisement published5. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Leikskólinn Álfaborg
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags