Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Starfsmaður í 60-100 % starf í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými

Auglýst er eftir starfsfólki með heilbrigðis bakgrunn eða félagsfræðilegan bakgrunn í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými, 60-100 % starf

Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks sem notar vímuefni?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að fólki með heilbrigðismenntun, félagsfræðilegan bakgrunn, eða fólki með reynslu og þekkingu í málaflokknum í hluta eða fullt starf.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notenda-og áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu.

Hvað er Ylja?

✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.

✔️ Opnunartími er mánudaga til laugardaga frá kl.10-16. Vinnutími er frá kl. 9-17.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
  • Tengiliður í heilbrigðis- og félagsþjónustu
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að

  • Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, aðrir með félagsfræðilegan bakgrunn eða þekkingu og reynslu af málaflokknum.
  • Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum
  • Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
  • Hæfni til að vinna í notenda- áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu
  • Jákvæðni, þolinmæði og sveigjanleiki og hæfni til að takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur

📅 Umsóknarfrestur: Lok mars - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]

Advertisement published5. March 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 5, 105 Reykjavík
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Working under pressure
Work environment
Professions
Job Tags