

Skammtímadvöl fyrir börn
Við hjá Mosfellsbæ leitum af öflugu og framsæknu sumarstarfsfólki til að ganga til liðs við okkur. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að auka félagslega þátttöku og bæta líðan barna. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.
Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.
Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum.
Á virkum dögum eru einungis kvöld- og nætuvaktir og um helgar eru dag-, kvöld- og næturvaktir.
Leitað er að sumarstarfsfólki í 30-90% starfshlutfall frá 10. maí-15. ágúst með möguleika á framlengingu.
Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv. stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
- Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
- Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur, aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
- Almenn heimilisstörf
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
- Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Framtaksemi og samviskusemi
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð
- Aldursskilyrði er 20 ár
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Icelandic
English










