
Skrifstofa Alþingis
Hlutverk skrifstofu Alþingis er að styðja við starfsemi Alþingis svo að þingið og þingmenn geti sinnt hlutverkum sínum samkvæmt stjórnarskrá og lögum. Meginverkefni skrifstofunnar eru að vera forseta til aðstoðar, framfylgja ákvörðunum hans og forsætisnefndar auk ákvarðana á fundi forseta með þingflokksformönnum. Enn fremur að veita alþingismönnum, nefndum og þingflokkum faglega aðstoð og þjónustu, að hafa á hendi almennan rekstur þingsins og stjórnsýslu og að varðveita og miðla upplýsingum um hlutverk og starfsemi Alþingis.

Skrifstofa Alþingis leitar að sérfræðingum til starfa á þingfunda- og útgáfusviði
Við leitum að þremur öflugum íslenskufræðingum með góða tæknikunnáttu og áhuga á að starfa með okkur á skrifstofu Alþingis. Meginverkefnin eru yfirlestur og útgáfa á þingskjölum og ræðum ásamt aðstoð við þingfundi. Unnið er þvert á deildir innan sviðsins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi störf í lifandi starfsumhverfi.
Þingfunda- og útgáfusvið annast undirbúning þingfunda og veitir forseta, varaforsetum og þingmönnum faglega ráðgjöf og aðstoð við framkvæmd þeirra. Þá ber sviðið ábyrgð á útgáfu á þingskjölum og umræðum í þingsal, Alþingistíðindum og lagasafni. Nánari upplýsingar um hlutverk sviðsins má finna á vef þingsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gátun og frágangur texta í þingskjölum og ræðum
- Yfirlestur og lagfæringar á lagatæknilegum atriðum
- Vinnsla og útgáfa þingskjala
- Aðstoð við undirbúning og framkvæmd þingfunda
- Þátttaka í þróun verkefna og verklags
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í íslensku, málvísindum eða sambærilegum greinum
- Marktæk reynsla af vinnu við yfirlestur og frágang texta
- Góð tæknikunnátta og hugarfar grósku
- Farsæl reynsla af teymisvinnu
- Frumkvæði og sveigjanleiki
- Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og jákvæðni
Advertisement published25. March 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (6)

Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit
Sjúkratryggingar Íslands

Verkefnastjóri óskast í eignadeild
Kópavogsbær

Framkvæmdastjóri - Þjónusta
Sjúkratryggingar Íslands

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds
Reykjanesbær

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri samgöngumála
Reykjanesbær

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis
Velferðarsvið Kópavogsbæjar