

Deildarstjóri fjárlaga- og greiningardeildar
Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í starf deildarstjóra fjárlaga- og greiningardeildar á nefnda- og greiningarsviði. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegri stjórn deildarinnar og ráðgjöf og faglegri aðstoð við fjárlaganefnd, einkum í tengslum við fjárlagafrumvarp, fjármálaáætlun og fjármálastefnu. Leitað er að stjórnanda með víðtæka þekkingu á málefnasviði nefndarinnar. Deildarstjóri þarf að búa yfir skarpri greiningarhæfni og getu til að veita skýra og trausta ráðgjöf.
Starfsfólk deildarinnar veitir fjárlaganefnd þjónustu og sinnir verkefnum fyrir aðrar fastanefndir þingsins. Í deildinni starfar einnig rannsókna- og upplýsingaþjónusta sem sinnir m.a. gagnaöflun og greiningum fyrir þingmenn, nefndir og starfsfólk. Lögð er áhersla á öfluga teymisvinnu og virkt umbótastarf.
- Dagleg stjórnun og stuðningur við starfsfólk
- Fagleg forysta á málefnasviði deildarinnar
- Ráðgjöf og aðstoð við fjárlaganefnd
- Þátttaka í umbótastarfi og stefnumótunarvinnu
- Háskólapróf á meistarastigi í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum
- Farsæl stjórnunarreynsla og geta til að leiða árangursríka teymisvinnu
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla af gerð eða undirbúningi fjárlagafrumvarps og af framkvæmd laga um opinber fjármál
- Afburða samskiptafærni
- Framsækni og gróskuhugarfar
- Framúrskarandi skipulags- og greiningarhæfni
- Jákvæðni, lipurð og geta til að halda ró og yfirvegun þegar mikið liggur við
- Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskufærni
Icelandic










