Popp Up
Popp Up
Popp Up

Verkefnastjóri með ástríðu fyrir samfélagsmiðlum

Dreymir þig um að hanga á TikTok í vinnunni? 📲

Markaðsstofan Popp Up óskar eftir að ráða öflugan og skapandi liðsfélaga í starf verkefnastjóra.

Við leitum að skipulögðum einstaklingi með brennandi áhuga á samfélagsmiðlum, samskiptum og skapandi markaðsstarfi - og nýtur þess að sjá hugmyndir verða að veruleika. 🍿

Popp Up er framleiðslufyrirtæki sem vinnur með framúrskarandi fyrirtækjum í fjölbreyttum geirum. Við leggjum áherslu á samvinnu, frumkvæði og góða stemningu í vinnunni.

Við viljum bæta við okkur öflugum liðsfélaga sem hefur gaman af því að vinna í lifandi umhverfi þar sem verkefnin eru fjölbreytt og hugmyndir fá að vaxa.

Verkefnastjóri vinnur náið með tökumönnum, klippurum og viðskiptavinum í að búa til grípandi samfélagsmiðlaefni, þvert á miðla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun viðskiptasambanda og skipulagning myndbandsgerðar
  • Stefnumótun, hugmyndavinna og birting markaðsefnis

  • Fylgjast með því sem er að trenda á samfélagsmiðlum

  • Hugmyndavinna og textagerð

  • Öflun nýrra viðskiptavina

  • Gerð birtingaáætlana

  • Árangursskýrslur

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem er með:

  • Sterkt auga fyrir því hvað virkar á samfélagsmiðlum og gott innsæi til að greina gott efni frá slæmu

  • Góða þjónustulund og frábær mannleg samskipti

  • Skapandi hugsun og frumkvæði

  • Haldbæra þekkingu á samfélagsmiðlum og stjórnun þeirra

  • Skipulagshæfileika og drifkraft

  • Góða íslensku- og enskukunnáttu

  • Reynsla af stafrænni markaðssetningu kostur

Advertisement published14. October 2025
Application deadline27. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
Location
Bolholt 8, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.TikTok
Professions
Job Tags