Kerecis
Kerecis
Kerecis

Verkefnastjóri í vöruþróun

Verkefnastjóri í vöruþróun hjá Kerecis er hluti af reyndu teymi sérfræðinga í lækningatækjum sem bera ábyrgð á að þróa og koma á markað næstu kynslóð lækningartækja til meðferðar á mismunandi tegundum sára. Starfsmaðurinn mun starfa á skrifstofu Kerecis í Reykjavík

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og stýring á vöruþróunar- og rannsóknarverkefnum innan þróunardeildar samkvæmt vöruþróunarferlum.
  • Áætlanagerð verkefna með tilliti til tíma, kostnaðar og mannauðs.
  • Miðla upplýsingum um stöðu verkefna.
  • Kynna stöðu verkefna reglulega innan deildar og til yfirmanna fyrirtækisins.
  • Samstilla hlutverk innan vöruþróunarteymisins og stuðla að góðum samskiptum innan verkefna.
  • Tryggja gott samstarf við aðrar deildir og utanaðkomandi aðila sem eiga þátt í því að koma vörunni á markað.
  • Skipuleggja og taka þátt í hugmyndavinnu innan þróunardeildar.
  • Ábyrgð á skjölun í þróunarferli og þáttaka í skjalagerð tengdri þróunarvinnu.
  • Önnur verkefni og ábyrgð eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.S. gráða. Kostur að það sé innan verkfræði eða raungreina.
  • Menntun í verkefnastjórnun æskileg.
  • Að lágmarki 2ja ára reynsla sem verkefnastjóri.
  • Reynsla í vöruþróun, helst í lækningatækjaiðnaði.
  • Framúrskarandi kunnátta á Microsoft Office pakkanum, jafnframt Microsoft Project eða öðrum sambærilegum verkefnastjórnunarhugbúnaði.
  • Reynsla af vinnu með FDA og ISO-vottaðar vörur (21 CFR 820 og ISO 13485) er kostur.
  • Metnaður til þess að skila hágæðavörum samkvæmt tímaáætlun og innan fjárhagsáætlunar.
  • Reynsla af vinnu í alþjóðlegu umhverfi er æskileg.
  • Nákvæmni og skipulagshæfni.
  • Jákvæðni, drifkraftur og gott vinnusiðferði.
  • Geta til að hvetja og leiðbeina öðrum til þess að ná settum markmiðum.
  • Góð samskiptahæfni (munnleg og skrifleg) og geta til að koma fram.
Advertisement published3. December 2025
Application deadline16. December 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Optional
Expert
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags