

Verkefnastjóri á umhverfissviði
Hafrannsóknastofnun leitar að öflugum verkefnastjóra með reynslu af breytingastjórnun til að skilgreina og leiða umbóta- og stefnumótunarverkefni á umhverfissviði stofnunarinnar.
Starfið felst í að þróa og innleiða bætt verklag um gögn- og gæðamál ásamt því að innleiða verklag sem styður við bætta verkefnastjórnun á sviðinu. Verkefnastjóri ber ábyrgð á undirbúningi, stýringu og eftirfylgni stefnumótunarverkefna sem varða faglegar áherslur og framtíðarsýn starfseminnar.
Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ríka umbótahugsun og góða samskiptahæfileika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skilgreina og leiða stefnumótunar- og umbótaverkefni.
- Innleiðing mótaðs verklags um verkefnastjórnun.
- Þátttaka í undirbúningi og skipulagningu ýmissa verkefna, s.s. greiningar, kostnaðar- og tímaáætlanir.
- Almennur stuðningur við vinnu tengda verkefnaskipulagi og stýringu verkefna.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af stefnumótunarvinnu, umbótavinnu og innleiðingu breytinga.
- Leiðtogahæfileikar, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi.
- Frumkvæði, metnaður og rík umbótahugsun.
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
- Góð stafræn hæfni.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Frekari upplýsingar um starfið veita
Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri á umhverfissviði Hafrannsóknastofnunar [email protected], Auður Bjarnadóttir [email protected] og Unnur Ýr Konráðsdóttir [email protected] sem annast umsóknarferlið.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember n.k.
Nánar um ferlið
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá, hámark 2 bls. ásamt kynningarbréfi, hámark 1 bls., á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Umsækjendur skulu tilnefna a.m.k. tvo meðmælendur.
Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er.
- Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
- Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
- Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
- Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna – Þor
Icelandic
English










